Reykjanesbær tekur að sér byggingu hjúkrunarheimilis fyrir ríkið

Frá undirritun samkomulags
Frá undirritun samkomulags

Á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar í gær var skrifað undir samkomulag milli Reykjanesbæjar og Félagsmálaráðuneytisins um nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ sem staðsett verður á Nesvöllum. Þar verða 30 hjúkrunarrými sem áætlað er að verði tekin í notkun á næsta ári.

Með samkomulaginu tekur Reykjanesbær að sér að útbúa hjúkrunarheimili fyrir ríkið sem tekur húsnæðið á leigu undir starfsemina. Reykjanesbær er í hópi 9 sveitarfélaga á landinu sem hefur samþykkt að fara þessa leið. Ábyrgð á framkvæmdum og kostnaði við byggingu hússins er þar með færð frá ríkisvaldinu yfir til sveitarfélagsins. Þess í stað verður húsnæðið eign Reykjanesbæjar að 40 árum liðnum þegar leigutíma lýkur.

Reykjanesbær vill með þessu flýta, eins og kostur er, fyrir að ný hjúkrunarrými verði í boði í sveitarfélaginu. Ennfremur má minna á að 30 rúma hjúkrunarheimili getur skapað 40-50 ný störf innan sveitarfélagsins.

Bæjarráð mun á næstu vikum meta þá kosti sem bjóðast við framkvæmdir.