Reykjanesbær - Verndarsvæði í byggð?

Horft yfir Keflavíkurtún og Duus Safnahús
Horft yfir Keflavíkurtún og Duus Safnahús

Er ástæða til að vernda ákveðin svæði í Reykjanesbæ, t.d. gamla bæinn, vegna menningarsögulegs mikilvægis? er meðal þess sem spurt er á sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar sem opnuð verður í Gryfjunni, Duus Safnahúsum laugardaginn 11. nóvember kl. 14:00. Á sýningunni gefst íbúum kostur á að láta rödd sína heyrast og koma með tillögur um framtíðarásýnd gamla bæjarins og annarra svæða. Sýningin verður opin til 15. apríl 2018. 

Sunnudaginn 12. nóvember kl. 14 er boðið upp á málþing í tengslum við sýninguna í Bíósal Duus Safnahúsa og eru allir sem áhuga hafa á viðfangsefninu hvattir til að mæta og hlýða á áhugaverð erindi þeim tengd. Með framsögu verða:

  • Karl Steinar Guðnason fyrrverandi alþingismaður
  • Jón Stefán Einarsson arkitekt
  • Guðný Gerður Gunnarsdóttir frá Minjastofnun Íslands
  • Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar.

Ókeypis aðgangur er á sýninguna og málþingið.