Rós í hnappagat Víkingaheima

Á þeim fimm árum sem liðin eru frá því Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru formlega opnaðir hefur mikið vatn runnið til sjávar. Sýningar hafa verið endurnýjaðar og uppfærðar og að sögn Valgerðar Guðmundsdóttur, menningarfulltrúa hjá Reykjanesbæ, sem sinnir framkvæmdastjórn Víkingaheima hafa þær fimm sýningar sem nú eru í húsinu, með víkingaskipið Íslending í forgrunni, fengið mikið lof ferðamanna og kynningarfyrirtækja.

Mikil aukning gesta

Gestum hefur að sama skapi fjölgað jafnt og þétt. Árið 2010 voru þeir 8.500 en árið 2013 voru þeir orðnir 20.800. Það sem af er þessu ári hefur erlendum gestum enn fjölgað í hverjum mánuði og því má reikna með að nýtt aðsóknarmetið verði slegið þetta árið einnig.

Viðurkenning Tripadvisor

Valgerður segir það ánægjuleg tíðindi að gestum fjölgi en það sé ennþá mikilvægara að upplifun gestanna sé góð og þeir fari ríkari út en þeir komu inn. Því hafi það verið góður byr í seglin að opna bréf, sem barst í síðustu viku frá ferðaþjónustufyrirtækinu Tripadvisor, með hamingjuóskum og vottorði upp á það að Víkingaheimar hafi hlotið „Certifacate of Excellence,“ sem má útleggja sem vottorð um það sem er framúrskarandi. Það besta sé hins vegar að viðurkenningin byggist á mati gestanna sjálfra sem gefa Víkingaheimum fjóra og hálfa „stjörnu“ af fimm mögulegum á vefsíðu Tripadvisor. Valgerður segir slíka viðurkenningu gríðarlega mikilvæga í markaðssókn Víkingaheima því hverjum treysti maður betur á ferðum sínum en öðrum ferðamönnum þegar kemur að því að ákveða hvað eigi að velja til að skoða. Með vottorð Tripadvisor upp á vasann geti viðskiptavinurinn verið viss um að fá eitthvað fyrir sinn snúð með heimsókninni. Slík viðurkenning sé því mikil hvatning til að halda uppbyggingu Víkingaheima áfram og gera betur í dag en í gær.