Sáð verður og tyrft yfir manir við Helguvík og Hólamið í sumar

Reykjaneshöfn mun í sumar tyrfa manir við Hólamið og í Helguvík um leið og skólafólk kemur til vinnu hjá Reykjanesbæ. Undirbúningsvinna er hafin og reiknað með að torfið verði komið á manir í júní.

Sáð verður í manir inn á lóð Norðuráls í maí og aftur síðusumar, þannig að tryggt verði að gras muni festast á mönunum í sumar.

Jarðvegsvinna mun halda áfram í Helguvík og vonandi nokkrar lóðir úthlutaðar í sumar, en þá strax jarðvegsskiptar og mold komið fyrir í mönum norður af hringtorginu við hesthúsabyggð Mána.