Vilja kynna gestum fjölbreytt söfn og sýningar á safnahelgi

Frá sýninginni Heimilið sem Byggðasafn Reykjanesbæjar er nú með í Gryfjunni í Duus Safnahúsum.
Frá sýninginni Heimilið sem Byggðasafn Reykjanesbæjar er nú með í Gryfjunni í Duus Safnahúsum.

Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldið í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum dagana 11. - 12. mars nk. Er þetta í níunda sinn sem sveitarfélögin taka höndum saman í framkvæmd safnahelgi. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og ókeypis er inn á þátttökusöfnin á safnahelgi. Hægt er að kynna sér dagskrána á vefnum safnahelgi.is.

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í níunda sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 11. – 12. mars n.k. Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið að kynna fyrir landsmönnum hin fjölbreyttu söfn og sýningar sem sveitarfélögin á Suðurnesjum bjóða upp á. Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis s.s. höfuðborgarinnar að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði.

Íbúar Suðurnesja eru að sjálfsögðu líka hvattir til að koma og endilega að taka með sér gesti. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og margt verður á döfinni. Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin að þessu tilefni og um leið á þá dagskrá sem er í boði á hverjum stað nema annað sé tekið fram. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is.

Dagskráin er afar fjölbreytt; alls kyns sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Söfn, safnvísar og sýningar nálgast á annan tuginn og fjölbreytni safnanna er í raun einstök á ekki stærra svæði. Fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru. Sjósókn og vinnsla sjávaraflans er t.d. kynnt á þremur söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum, Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði og Bátasafninu í Duus Safnahúsum.

Náttúran er áberandi í Þekkingarsetri Suðurnesja og í Gestastofu Reykjaness jarðvangsins í Duus Safnahúsum en í Duus Safnahúsum eru annars 8 sýningarsalir með fjölbreyttum sýningum um sögu, listir og náttúru. Óhætt er líka að nefna Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma og sýningu Björgvins Halldórssonar Rokksafninu í Hljómahöllinni. Söguganga um Bítlabæinn Keflavík verður farin á vegum Bókasafns Reykjanesbæjar og Pokemon sýning verður á Bókasafni Sandgerðis. Tvö einkasöfn verða opin almenningi í Garðinum af þessu tilefni og tvær ljósmyndasýningar í Vogunum. Menningarvika Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og þar verður fjöldi viðburða og sýninga í gangi um allan bæ. Þar má m.a. nefna Guðbergsstofu og Jarðorkusýninguna í Kvikunni og listsýningar á Bókasafninu, Salthúsinu o.fl. stöðum.

Við bjóðum alla velkomna og hvetjum fjölskyldur til að koma og njóta þess sem í boði er. Fjöldi góðra veitinga- og kaffihúsa er í bæjunum og víða er list- og handverksfólk einnig með sölu á munum sínum. Sjá nánar á safnahelgi.is.

Nánari upplýsingar veita eftirfarandi fulltrúar sveitarfélaganna:

Valgerður Guðmundsdóttir Reykjanesbæ.
valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is

Björg Erlingsdóttir Grindavík. 
bjorg@grindavik.is

Guðjón Kristjánsson Sandgerði. 
gudjon@sandgerdi.is

Stefán Arinbjarnarson Vogum. 
stefan@vogar.is

Guðbrandur J. Stefánsson Garði. 
gudbrandurjs@svgardur.is