Safnahelgi á Suðurnesjum 12. og 13. mars

Úr bátasafni.
Úr bátasafni.

Safnahelgin framundan

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í áttunda sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 12. – 13. mars n.k.  Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið hið sama þ.e. að kynna fyrir landsmönnum hin frábæru söfn og sýningar sem við bjóðum upp á Suðurnesjum.  Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis s.s. höfuðborgarinnar að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði.  Aðsóknin síðustu ár hefur alltaf verið að aukast og síðast komu rúmlega 4000 gestir í heimsókn. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá.  Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis og sölu.  Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin að þessu tilefni og um leið á þá dagskrá sem er í boði á hverjum stað nema annað sé tekið fram.  Sveitarfélögin  fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af  Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is.

Fjölbreytt dagskrá

Dagskráin er afar fjölbreytt;  alls kyns sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur.  Söfn, safnvísar og sýningar nálgast á annan tuginn  og fjölbreytni safnanna er  mjög mikil og í raun einstök á ekki stærra svæði. Fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir  landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru.  Sjósókn og vinnsla sjávaraflans er t.d. kynnt á þremur söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum, Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði og Bátasafninu í Duus Safnahúsum .  Einkasýning poppstjörnunnar Páls Óskars í hinu nýja Rokksafni í Hljómahöllinni var opnuð á síðasta ári og vekur mikla lukku og svo má nefna Gestastofu Reykjanesjarðvangs í Duus Safnahúsum sem kynnir náttúruna á Reykjanesi en í Duus Safnahúsum eru að auki 5 aðrar sýningar á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og Byggðasafns Reykjanesbæjar. Að auki má nefna Íbúð Kanans og Leikfangasafn Helgu Ingólfs á Ásbrú, Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma og Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði eru fjórar sýningar og þar má m.a. sjá lifandi sjávardýr.  Í Vogunum er verið að opna skólasafn í Norðurkotsskóla sem nýbúið er að gera upp og þar er 144 ára skólasögu gerð skil.  Menningarvika Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og þar verður auðvitað fjöldi viðburða og sýninga í gangi um allan bæ. Þar má m.a. nefna Guðbergsstofu og Jarðorkusýninguna í Kvikunni og  listsýningar á Bókasafninu og Salthúsinu.

Ókeypis aðgangur

Við viljum bara bjóða alla velkomna og hvetja fjölskyldur til að koma og njóta þess sem í boði er.  Það er ókeypis inn á öll söfnin og sýningarnar og ótal margt að sjá, bæði fyrir börn og fullorðna. Að lokum má nefna að mörg gallerí og listhús eru líka opin og fólk verður bara að kíkja á safnahelgi.is.

Nánari upplýsingar veita eftirfarandi fulltrúar sveitarfélaganna:

Þorsteinn Gunnarsson Grindavíkurbæ. Sími: 696 9234 

thorsteinn@grindavik.is

Valgerður Guðmundsdóttir Reykjanesbæ. Sími: 864 9190

valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is

Rut Sigurðardóttir Sandgerðisbæ. Sími: 869 6169 

rut@sandgerdi.is

Stefán Arinbjarnarson Vogum. Sími:867 8854 

olafur@vogar.is

Eyrún Helga Ævarsdóttir Garði. Sími 896 6774 

eyrunhelga@svgardur.is