Safnahelgi á Suðurnesjum 15. og 16. mars

Alls staðar opið og ókeypis aðgangur

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í sjötta sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 15. – 16. mars n.k.  Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið hið sama þ.e. að kynna fyrir Íslendingum hin frábæru söfn og sýningar sem við bjóðum upp á Suðurnesjum.  Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis s.s. höfuðborgarinnar að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði.  Í ár bætast nokkrir veitingastaðir og gististaðir í hópinn með girnileg tilboð þannig að héðan þarf enginn að fara svangur. Aðsóknin síðustu ár hefur alltaf verið að aukast og síðast komu í kringum 2000 gestir. Söfn og setur setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá.  Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis og sölu.  Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin að þessu tilefni og um leið á þá dagskrá sem er í boði á hverjum stað.

Dagskráin í heild sinni á safnahelgi.is

Dagskrá safnahelgarinnar má sjá á vefnum safnahelgi.is. Þarna kennir ýmissa grasa; sýningar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur.  Söfn, safnvísar og sýningar nálgast á annan tuginn á svæðinu og eru þá bókasöfnin ekki talin með.   Þessi fjölbreytni safnanna er örugglega einstök á ekki stærra svæði og fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir  landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru.  Rokkheimar Rúna Júl rekja fyrir okkur poppsöguna og er það vel við hæfi í poppbænum Keflavík.  Við kynnumst sköpun jarðar og nýtingu orkunnar á einu helsta jarðhitasvæði landsins, Reykjanesskaganum í Orkuverinu jörð.  Sjósókn og vinnsla sjávaraflans er kynnt á a.m.k. fjórum söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum, Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði, Bátasafninu í Duushúsum og Byggðasafninu í Duushúsum.

Nýjustu sýningarnar

Nýjustu sýningarnar á svæðinu má finna m.a. í Víkingaheimum en þar voru settar upp þrjár nýjar sýningar s.l. vor. Þannig að nú má sjá þar auk víkingaskipsins Íslendings og Smitsonian sýningarinnar um siglingar norrænna manna, sýningu um fornminjar á Suðurnesjum, kynningu á 30 íslenskum sögustöðum og síðast en ekki síst frábæra sýningu um norræna goðafræði  þar sem fólk gengur inn í ævintýraheim þar sem goðin eru kynnt í myndum, tali og tónum. Á sunnudeginum verður Ásatrúarfélagið svo með kynningu fyrir áhugasama.
Það má líka benda á nýja sýningu í Listsafni Reykjanesbæjar sem er einmitt að opna á laugardeginum kl. 14.00 og allir eru velkomnir að vera viðstaddir. Þarna er verið að opna sýningu á mannamyndum eftir Stephen Lárus Stephen og Stefán Boulter. Tvær aðrar áhugaverðar og nýjar sýningar eru Íbúð Kanans á Ásbrú og Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma.

Við bjóðum ykkur velkomin!

Við viljum bara bjóða sem flesta velkomna og hvetja fjölskyldur til að koma og njóta þess sem í boði er.  Það er ókeypis inn á öll söfnin og sýningarnar og ótal margt að sjá, bæði fyrir börn og fullorðna. Að lokum má nefna að mörg gallerí og listhús eru líka opin og fólk verður bara að kíkja á safnahelgi.is. Fulltrúar allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja.