Saman með ljós í hjarta á Ljósanótt

Ljósanótt, fjölskyldu- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, verður haldin dagana 3.–6. september. Þá fyllist bærinn af lífi, menningu og fjölbreyttum viðburðum þegar íbúar og gestir koma saman og fagna einni stærstu bæjarhátíð landsins.

„Með ljós í hjarta“ er leiðarstef Ljósanætur. Í því felst að láta ljós sitt skína í sköpun og samveru og mæta hvert öðru af gleði, virðingu og umhyggju. Ljósanótt er fyrst og fremst fjölskyldu- og menningarhátíð þar sem markmiðið er að fólk á öllum aldri geti notið góðra stunda saman og farið öruggt heim að loknum hátíðarhöldum.

Fjölmenni fylgir stórri hátíð og því skiptir máli að við stöndum saman að því að skapa gott og öruggt hátíðarhald. Reynsla af stórum viðburðum í sumar hefur meðal annars vakið umræðu um áfengisneyslu ungmenna. Af því tilefni viljum við sérstaklega hvetja foreldra og forráðafólk til að vera í góðu sambandi við ungmennin sín yfir hátíðina, vita hvar þau eru og með hverjum og ræða við þau um áfengi og öruggt hátíðarhald. Jafnframt er minnt á útivistarreglur barna og ungmenna.

Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð, verður á ferðinni á Ljósanótt. Starfsfólk Flotans sinnir forvarnar- og stuðningsstarfi meðal ungmenna, verður sýnilegt og til staðar fyrir þau á meðan á hátíðarhöldum stendur.

Við hvetjum jafnframt alla gesti til að sýna hvert öðru og umhverfinu tillitssemi, ganga vel um bæinn okkar og láta vita ef þeir verða varir við aðstæður þar sem aðstoðar er þörf.

Ljósanótt verður til fyrir tilstilli ótal margra – íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja, listafólks, starfsfólks og annarra sem leggja sitt af mörkum. Sama á við um góða stemningu hátíðarinnar. Við sköpum hana saman.

Reykjanesbær hvetur okkur öll til að standa saman að öruggri, gleðilegri og eftirminnilegri Ljósanótt – saman með ljós í hjarta.