Sameiginlegur skipulagsdagur leikskóla á Reykjanesi

Unnið í stígvélagarðinum í Innri Njarðvík.
Unnið í stígvélagarðinum í Innri Njarðvík.

Símenntun og starfsþróun er stór þáttur í öllu skólastarfi en þann 29. ágúst næstkomandi verður sameiginlegur skipulagsdagur leikskóla á Reykjanesi haldinn og verður sá dagur bæði fjölbreyttur og fróðlegur. 

Öflugt leikskólastarf hefur einkennt leikskóla á Reykjanesinu og er nú gerð tilraun til að miðla því sem vel er gert og nýta þekkingu sem til staðar er innan skólanna til annarra skóla. Sterk tengsl eru á milli framtíðarsýnar Reykjanesbæjar í menntamálum, grunnþátta menntunar og viðfangsefna skipulagsdagsins og er þannig unnið enn frekar að því að efla leikskólastarfið og glæða með nýjum hugmyndum og leiðum í vinnu með börnum.

Fyrir hádegi verður sameiginlegur fyrirlestur í Hljómahöllinni þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur flytur fyrirlesturinn „að þrífast í krefjandi starfi“.  Eftir hádegi er boðið upp á 16 smiðjur sem eru eins fjölbreyttar og þær eru margar. Má þar nefna vísindasmiðju, stærðfræðismiðju, kynningu á leikskólafræðum, læsi, jafnrétti og lýðræði og fyrirlestur um notkun Ipad í leikskólastarfi.

Undirbúningur hefur staðið yfir í heilt ár en stjórnir 9. deildar félags leikskólakennara og félags stjórnenda í leikskólum ásamt leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar sáu um skipulagninguna.