Sendiherra Póllands og frú í heimsókn

Kjartan Már Kjartansson, Gerard Pokruszynski, Margherita Bacigalupo-Pokruszynska og Hilma Hólmfríðu…
Kjartan Már Kjartansson, Gerard Pokruszynski, Margherita Bacigalupo-Pokruszynska og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir ræða menningarmálin.

Sendi­herra Pól­lands á Íslandi, Ger­ard Pokruszynski og eiginkona hans Marg­her­ita Bacigal­upo-Pokruszynska eru nú í óopinberri heimsókn í Reykjanesbæ. Í dag hafa þau heimsótt menningarstofnanir og fengið kynningu á starfsemi þeirra. Þá hafa þau kynnt sér menningarlífið og samfélagið, m.a. móðurmálskennslu pólskra barna sem búsett eru í bænum.

Um 4000 íbúar í Reykjanesbæ eru af pólsku bergi brotnir. Bókasafn Reykjanesbæjar er búið góðu úrvali pólskra bóka fyrir börn og fullorðna. Reykjanesbær heldur úti Facebook síðu sem miðar að því að koma upplýsingum til pólskra íbúa og mynda tengsl. Þá hefur Reykjanesbær ráðið til sín verkefnisstjóra fjölmenningarmála, Hilmu Hólmfríði Sigurðardóttur. 

Hér sést Stefanía Björnsdóttir ræða pólska bókakostinn fyrir Margherita. Hilma og Gerard fylgjast með