Hvert er jólahús Reykjanesbæjar?

Hvert verður jólahúsið í ár?
Hvert verður jólahúsið í ár?

Íbúar í Reykjanesbæ eru margir hverjir sannkölluð jólabörn og leggja mikinn metnað í jólaskreytingar utandyra. Það er líka einstaklega gaman að taka rúnt um bæinn og skoða þessar fallegu skreytingar. Þar sem bærinn okkar stækkar stöðugt geta glæsilegar jólaskreytingarnar leynst víða og því finnst okkur tilvalið að smella í laufléttan jólaleik þar sem íbúar geta komið með tillögur að jólahúsi Reykjanesbæjar. Húsasmiðjan í Reykjanesbæ ætlar að styðja við bakið á þessu uppátæki með gjafabréfi til þess húss sem verður hlutskarpast í leiknum.

Ferlið er sáraeinfalt. Ef þú sérð hús sem þér finnst ástæða til að vekja athygli á fyrir flottar skreytingar, þá smellirðu mynd af húsinu og leggur götuheiti og númer á minnið. Síðan er tillagan sett hér og myndinni hlaðið inn og götuheiti og númer skráð.

SENDA INN TILlÖGU

Tekið er við tilnefningum til 17. desember.

Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 17. desember næstkomandi. Menningar- og þjónusturáð fer yfir tilnefningarnar og velur jólahús Reykjanesbæjar. Afhending viðurkenninga fer síðan fram í Aðventugarðinum á Þorláksmessu þar sem sigurvegarar fá einnig afhenta vinninga í boði Húsasmiðjunnar.

Jólahús Reykjanesbæjar 2022 - Heiðarból 19