Sjálfboðaliðar taka til hendinni í Reykjanesbæ

Sjálfboðaliðar frá Seeds samtökunum við Vatnsnes í Reykjanesbæ.
Sjálfboðaliðar frá Seeds samtökunum við Vatnsnes í Reykjanesbæ.

Reykjanesbæ barst liðsauki í hin ýmsu umhverfisverkefni frá sjálfboðaliðum frá sjálfboðaliðssamtökunum Seeds í nýliðnum ágústmánuði. Verkefnin voru bæði á vegum Reykjanesbæjar og Kadeco.

Um var að ræða tvo mismunandi hópa sem komu í tvær vikur hvor en sjálfboðaliðarni komu frá mörgum ólíkum löndum til að kynnast Íslandi í gegnum sjálfboðastarfið. Seeds samtökin starfrækja vinnubúðir víða um land í samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og sveitarfélög.
Að sögn Berglindar Ásgeirsdóttur garðyrkjufræðings hjá Reykjanesbæ fóru hóparnir meðal annar í ruslahreinsun á Vatnsnesi og gengu þar vasklega til verks með bros á vör.  Einnig fóru þau í hreinsun á opnum svæðum, Pattersson, Ásbrú og í heilmikla grisjun í Sólbrekkuskógi í samstarfi við flokkstjóra vinnuskólans.