Sjómannavalsar, saltfiskur og draumráðningar

Ungir þátttakendur í ljósmyndamaraþoni Bókasafns Reykjanesbæjar gera sig klára í slaginn.
Ungir þátttakendur í ljósmyndamaraþoni Bókasafns Reykjanesbæjar gera sig klára í slaginn.

Mikill fjöldi gesta sótti söfn á Suðurnesjum heim á liðinni safnahelgi þar sem boðið var upp á fjölbreytta menningardagskrá.
Safnahelgin er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum en markmið hennar er að kynna fjölbreytta safnaflóru suður með sjó og iðandi menningu.

Gestir sóttu tónleika, nutu leiðsagnar, hlýddu á fyrirlestra og gæddu sér á humarsúpu og góðum saltfiskréttum svo eitthvað sé nefnt. Sjómannavalsar í Duushúsum vöktu lukku sem og skessan í hellinum, sýningin Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt.