Skapandi krakkar á Suðurnesjum

Gunnar Helgason að leiða námskeið í skapandi skrifum
Gunnar Helgason að leiða námskeið í skapandi skrifum

Í síðustu viku hófst námskeið í skapandi skrifum fyrir börn í 3.-6. bekk á Suðurnesjum. Rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason var fenginn til að leiða námskeiðin og voru undirtektirnar frábærar!

Fjöldatakmörkun miðaðist við 30 börn frá hverju bæjarfélagi og fylltust námskeiðin alls staðar.

Krakkarnir hafa verið einstaklega áhugasöm og eiga íbúar Suðurnesja góð bókajól í vændum í framtíðinni miðað við frammistöðu krakkanna.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn á svæðinu til að skapa sinn heim og senda inn ljóð, lagatexta, leikrit, stuttmyndahandrit eða smásögu til krakkaRÚV og taka þátt í Sögur - verðlaunahátíð barnanna. Þar verður verk í hverjum flokki valið og útfært nánar.

Sögur eru stórt samstarfsverkefni margra stofnana sem allar vinna að barnamenningu og sköpun. Markmið verkefnisins er að auka læsi og áhuga á íslenskum barnabókum og sögum og í leiðinniþví að upphefja barnamenningu á Íslandi og sýna börnum að hverju hugmyndir þeirra geta orðið.

Um áramótin verður valið úr innsendu efni. KrakkaRÚV velur handrit og framleiðir stuttmyndir, Menntamálastofnun velur smásögur og gefur þær út í rafbókinni Risa-Stórar-Smásögur, fagfólk í tónlist velur lög og texta til að vinna áfram með höfundum, Borgarleikhúsið velur 2 verk til að setja á svið sem útskriftarverk Leiklistarskóla Borgarleikhússins og að þessu sinni bætast við ein verðlaun. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verðlaunar Ungmennahandrit ársins 2021 í tilefni af 50 ára heimkomuafmæli handritanna okkar frá Danmörku.

Viðburðurinn Sögur - skapandi skrif er samstarfsverkefni almenningsbókasafna Suðurnesja sem styrkt eru af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.