Skessan komin í frí til 15. janúar

Skessur þurfa líka jólafrí.
Skessur þurfa líka jólafrí.

Skessan í hellinum skrapp í jólafrí til frænkna sinna í Búrfelli og hefur því beðið okkur um að skila því til ykkar að hún verði ekki heima og  hellirinn  lokaður til 15. janúar.  Skessan skilar kærri  kveðju og  hlakkar til að sjá ykkur sem flest á nýju ári.