Skimun á lestrargetu nemenda

Starfsfólk skólaþjónustu Reykjanesbæjar, Gyða, Dröfn og Hafdís.
Starfsfólk skólaþjónustu Reykjanesbæjar, Gyða, Dröfn og Hafdís.

Að undanförnu hafa kennsluráðgjafar á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar og sérkennarar grunnskólanna skimað lestrargetu nemenda í 9. bekk með greiningartækinu LOGOS.   Niðurstöður skimunarinnar eru nýttar til að bregðast við ef þær sýna að lestrargetu er ábótavant  hjá einstaka nemendum svo hægt sé að aðstoða þá, kennara þeirra og foreldra, við að bæta lestrarfærnina.  Tryggja þarf að nemendur með lestrarerfiðleika fái aðstoð og geti nýtt sér þá tækni og búnað sem í boði er sem sífellt verður betri og fjölbreyttari.  Einnig stendur til að skima lestrargetu nemenda í 6. bekk í nóvember og í 3. bekk í janúar 2013.