Stærsti slökkvibíll í heimi, Bergrisinn og gagnvirkur plötuspilari á Safnahelgi

Safnahelgi verður haldin á Suðurnesjum 9. og 10. mars
Safnahelgi verður haldin á Suðurnesjum 9. og 10. mars

Nýr gagnvikur plötuspilari verður vígður í Hljómahöll á Safnahelgi á Suðurnesjum og stærsti slökkvibíll í heimi verður til sýnis í safnageymslum Reykjanesbæjar. Íbúar í Suðurnesjabæ og Vogum ætla að opna söfn sín og í Grindavík verður hægt að skoða muni sem tengjast ströndum á svæðinu. Auk þess verður nóg um að vera fyrir börnin, m.a. upplestur úr Veröld Vættanna bæði í Reykjanesbæ og Grindavík, föndursmiðja og ratleikur í Duus Safnahúsum og ævintýraveröld í Þekkingarsetrinu. Tilvalið er fyrir fjölskylduna alla að taka rúnt um Suðurnesin og skoða menningu og mannlíf í bakgarði höfuðborgarinnar.

Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin í ellefta sinn  helgina 9.-10. mars með frábærri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Safnahelgi á Suðurnesjum er sameiginlegt verkefni allra safna, sýninga og setra á Suðurnesjum sem liður í því að kynna menningu á heilu landssvæði fyrir landsmönnum öllum. Það hefur tekist vel með aukinni aðsókn árlega auk þess sem Safnahelgi hefur fest sig í sessi í svo langan tíma eins og raun ber vitni. Dagskrá helgarinnar er aðgengileg á ýmsu formi, sjá hér að neðan.

Með því að smella á þennan tengil opnast vefur Safnahelgi á Suðurnesjum

Með því að smella á þennan tengil opnast Facebook-síða Safnahelgi á Suðurnesjum 

Með því að smella á þennan tengil opnast heildardagskrá Safnahelgi á Suðurnesjum á pdf formi

Hér má sjá eina af einkennismyndum Safnahelgi á Suðurnesjum