Starfið hefst í grunnskólunum

Frá starfsdegi.
Frá starfsdegi.

Starfið í grunnskólunum í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði hófst formlega í dag, miðvikudaginn 15. ágúst, með sameiginlegum starfsdegi.   Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri, ávarpaði starfsfólk með hvatningu um að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið, að efla námsárangur í skólum á svæðinu.  Framundan er vinna við endurskoðun skólastefnu Reykjanesbæjar og útfærslu á nýrri Aðalnámskrá grunnskóla.  Flutt voru tvö erindi, Þóra Björk Jónsdóttir, kennslu- og sérkennslufulltrúi, fjallaði um námsmat samkvæmt  nýrri námskrá grunnskóla og  Sigurður Þorsteinsson, sálfræðingur, fjallaði um samstarf og samvinnu innan grunnskólanna.