Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur

Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur á Suðurnesjum verður haldin miðvikudaginn 10. október.
Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur á Suðurnesjum verður haldin miðvikudaginn 10. október.

Starfsgreinakynning fyrir grunnskólanemendur á Suðurnesjum hefur verið haldin reglulega frá árinu 2012 og orðið stærri og glæsilegri með hverju árinu. Síðustu ár hefur kynningin verið hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja, haldin af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum en skipulögð af Þekkingarsetri Suðurnesja.

Markmið starfsgreinakynningarinnar er að efla starfsfræðslu 
grunnskólanemenda í 8. og 10. bekk og stuðla að sambærilegri fræðslu fyrir alla á svæðinu. Kynningin er einnig mikilvægur þáttur í því að auka starfsvitund og skerpa á framtíðarsýn ungs fólks. Henni er sérstaklega beint að eldri nemendum grunnskólanna meðal annars vegna þess að hlutfall þeirra 10. bekkinga sem halda áfram námi að loknum grunnskóla hefur verið lægra á Suðurnesjum en annars staðar á landinu síðustu ár.

Vel hefur tekist að skipuleggja og halda kynningarnar, ekki síst vegna mikillar velvildar fyrirtækja og einstaklinga á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Sömu aðilar hafa tekið þátt ár eftir ár og gefið tíma sinn. Án þessa mikla stuðnings atvinnulífsins væri ómögulegt að halda kynningu sem þessa, sem er þýðingarmikil fyrir alla sem að henni koma – nemendur, skóla og fyrirtæki. Öflug náms- og starfsfræðsla er sérstaklega mikilvæg til að auka líkur á því að nemendur velji það framhaldsnám sem þeir hafa mestan áhuga á og hentar þeim best. Rétt val dregur úr líkum á brotthvarfi úr námi sem hefur verið of mikið hér á landi síðustu ár. Þá styrkir kynning sem þessi tengsl atvinnulífs og skóla sem skipta miklu máli, sérstaklega þegar kemur að iðn- og starfsnámi sem og námi í tæknigreinum. 

Í ár verður starfsgreinakynningin haldin miðvikudaginn 10. október frá kl. 9-12 í íþróttahúsinu í Keflavík og stefnir í að um eitt hundrað ólíkar starfsgreinar verði kynntar, án efa með miklum glæsibrag líkt og undanfarin ár.