- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Fimmtudaginn 5. febrúar var haldin hátíðleg samkoma fyrir starfsfólk sem náði 25 ára starfsaldri á árinu 2025 og þá sem létu af störfum vegna aldurs. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Guðný Birna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar, buðu hópnum til kaffisamsætis á Hótel Keflavík fyrir hönd bæjarstjórnar. Góð þátttaka var í viðburðinum og hafði hver gestur tækifæri til að taka með sér einn gest.
Reykjanesbær hefur á síðustu árum tileinkað sér þá hefð að heiðra starfsfólk sem hefur starfað hjá sveitarfélaginu í 25 ár og þakka þeim fyrir dygga þjónustu við bæjarbúa. Fyrir nokkru var ákveðið að breyta fyrirkomulaginu þannig að í stað þess að fagna stórafmælum starfsfólks yrði starfsaldri fagnað. Þannig eru nú haldin sérstök kaffisamsæti fyrir starfsfólk sem nær 10 ára starfsaldri á hverjum vinnustað og sameiginleg athöfn fyrir þau sem ná 25 ára starfsaldri ásamt þeim sem láta af störfum vegna aldurs.
Árið 2025 náðu fjórtán einstaklingar 25 ára starfsaldri hjá Reykjanesbæ, en 12 létu af störfum vegna aldurs. Einn starfsmaður var bæði í hópi þeirra sem náði 25 ára starfsafmæli og þeirra sem hættu störfum vegna aldurs á árinu. Margir þeirra höfðu starfað hjá sveitarfélaginu um áratugaskeið og jafnvel alla sína starfsævi. Reykjanesbær þakkar þeim öllum innilega fyrir dýrmæt og ómetanleg störf í þágu samfélagsins.
Þakklæti er okkur efst í huga fyrir ykkar ómetanlega starf og við óskum þeim sem láta af störfum vegna aldurs velfarnaðar á nýjum kafla í lífinu. Takk fyrir ykkur!
Starfsfólk sem náði 25 ára starfsaldri árið 2025
Alexandra Pitak
Brynjar Harðarson
Guðný Björg Karlsdóttir
Hafdís Friðriksdóttir
Hildur Guðrún Hákonardóttir
J. Kolbrún Alexandersdóttir
Sæunn Geirsdóttir
Sigrún Gróa Magnúsdóttir
Sigurlaug Ingvarsdóttir
Þorkatla Sigurðardóttir
Þórunn Sigurðardóttir
Tone Solbakk
Valdís Inga Steinarsdóttir
Zoran Daníel Ljubicic
Starfsfólk sem lét af störfum vegna aldurs árið 2025
Aðalborg Helga Sigurjónsdóttir
Guðlaug Brynja Hjaltadóttir
Halla Tómasdóttir
Helga Lára Haraldsdóttir
Hildur Guðrún Hákonardóttir
Jóhann Gunnarsson
Jóhanna M. Sigurgeirsdóttir
Kristbjörg G. Ólafsdóttir
Kristín G.B. Jónsdóttir
Rósa Björk Guðmundsdóttir
Sigurður Þórsson
Sverrir M. Kjartansson
