Stóra upplestrarkeppnin

Frá lestrarstund í Njarðvíkurskóla.
Frá lestrarstund í Njarðvíkurskóla.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin í Duus-húsum fimmtudaginn 7. mars  n.k. kl. 16:30. Fræðsluskrifstofan sér um framkvæmd hennar og  er hátíðin  nú haldin hér í sextánda sinn. Undirbúningur fyrir hana hefst í raun  á degi íslenskrar tungu í nóvember,  hjá öllum 7. bekkingum . Kjörorð verkefnisins eru  að vanda flutning og framburð íslensks máls, læra að njóta þess að flytja móðurmál okkar, sjálfum okkur og öðrum til ánægju og að bera virðingu fyrir því. Allir eru nemendurnir sigurvegarar því að það eiga sér stað miklar framfarir hjá öllum nemendum eftir að hafa æft markvisst  fallegan og vandaðan upplestur stóran hluta vetrarins í umsjón kennara.