- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kjartan Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvíkurhöfn.
Um er að ræða stækkun á olíubirgðastöð Atlantshafsbandalagsins í Helguvík, sem felur í sér byggingu nýs viðlegukants sem og birgðageymslu fyrir 25 þúsund rúmmetra af skipaeldsneyti. Framkvæmdirnar verða fjármagnaðar af Atlantshafsbandalaginu, en áætlað er að fjárfestingin geti numið allt að tíu milljörðum króna.
„Einmitt með svona framtaki sýnum við enn og ný að Ísland er verðugt bandalagsríki, en framkvæmdirnar í Helguvík koma til með að efla enn frekar öflugt eftirlit skipaflota Atlantshafsbandalagsins á hafsvæðinu í kringum Ísland og á norðurslóðum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það er viðvarandi skortur á skipaeldsneyti á Norður-Atlantshafi og þessi nýja aðstaða kemur til með að gjörbreyta þeirri stöðu til hins betra, okkur og öðrum aðildarríkjum til heilla.“
Nú stendur yfir undirbúningsvinna og hönnun umræddra mannvirkja í Helguvík sem jafnframt geta nýst í borgaralegum tilgangi. Stefnt er að því framkvæmdir hefjist síðla árs 2026 og þeim ljúki árið 2028.
Kjartan Már bæjarstjóri segir að sveitarfélagið fagni fyrirhugaðri uppbyggingu mannvirkja á vegum NATO í Helguvík sem ætlað er að auka öryggi á Norður-Atlandshafi og skapa frekari tækifæri fyrir höfnina.
