Strandhreinsunarátak Bláa hersins og Landverndar að hefjast/Keep Iceland Clean

Fólk við hreinsun við Strandleið í Reykjanesbæ. Ljósmynd: Blái herinn
Fólk við hreinsun við Strandleið í Reykjanesbæ. Ljósmynd: Blái herinn

Landvernd og Blái herinn hleypa strandhreinsunarátakinu Hreinsum Ísland af stokkunum í annað sinn á Degi umhverfisins þann 25. apríl. Dagana 25. apríl  til 6. maí vekja Landvernd og Blái herinn athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. Átakinu verður hleypt af stokkunum við grunnskóla Grindavíkur miðvikudaginn 25. apríl kl. 10. Nemendur skólans og leikskólanemendur frá Króki og Laut taka þátt í dagskrárhöldum. Sveitarfélögin á Reykjanesi taka þátt í Norrænni strandhreinsun þann 5. maí næstkomandi.

Landsmenn eru hvattir til að skipuleggja sínar eigin strandhreinsanir og má skrá sig til leiks á hreinsumisland.is en þar má finna góðar leiðbeiningar um hvernig skipuleggja megi hreinsun á árangursríkan hátt, í sátt við menn og náttúru. Vonast er til að sem flestir leggi hönd á plóg og taki þátt í að minnka plastmengun. Jafnframt hveturLandvernd og Blái herinn fólk til að nota minna plast, kaupa minna og auka endurvinnslu.  Allir sem skrá sína hreinsun geta fengið hana birta á Íslandskort átaksins!

Viðburður á Facebook https://www.facebook.com/events/159317888079898/

#hreinsumisland #landvernd #hreinthaf

Margir halda því fram að Ísland sé hreinasta land í heimi. Vissulega er loftið hreint og vatnið gott en þrátt fyrir það notar hver Íslendingur að meðaltali 40 kíló af plastumbúðum á ári. Aðeins lítill hluti skilar sér til endurvinnslu eða endurnýtingar og er meiri hluti þess annaðhvort grafinn í jörðu og urðaður eða endar í hafinu.

Plastmengun stærsta áskorun nútímans

Plastmengun í hafi er ein stærsta áskorun nútímans í umhverfismálum. Árlega eru 350 milljón tonn af plasti framleidd í heimum en af þeim enda um 8 milljón tonn af plasti í hafinu. Samkvæmt tölum frá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna koma 80% þess plasts af landi og 20% frá starfsemi á sjó.

Plastið eyðist ekki heldur brotnar niður í örplast sem sogar að sér eiturefni í sjónum. Plast getur vafist utan um dýr, heft hreyfingar þeirra og kyrkt en einnig geta eiturefni í plastinu, eða sem berast með plastinu skaðað dýrin. Plast getur þar að auki fyllt meltingafærin svo að dýrin telji sig vera södd en enda á því að hljóta innvortis sár eða svelta til bana.
Ógrynni plastagna renna með skólpi og rigningarvatni út í sjó og og má meðal annars rekja uppruna þeirra til dekkja, fatnaðar úr gerviefnum, málningar og snyrtivara.

Heilbrigt haf mönnum lífsnauðsynlegt

Landið okkar er umkringt hafi og tengir það okkur við önnur lönd. Það mótar landið okkar og hefur gríðarlega mikil áhrif á loftslag og veður. Hafið gerir jörðina lífvænlega og er tilvera okkar manna háð heilbrigði hafsins. Mikilvægt er fyrir smáa þjóð sem byggir afkomu sína að hluta til á sjávarútvegi að bera skynbragð á víðtæk áhrif hafsins á líf okkar.

Dagskrá 25. apríl

Hvað: Hreinsum Ísland hleypt af stokkunum
Hvar: Við Grunnskóla Grindavíkur. Ásabraut 2, 240 Grindavík
Hvenær: Miðvikudaginn 25. apríl kl. 10:00

Dagskrá 5. maí

Norræn strandhreinsun. Hreinsað verður samtímis á öllum Norðurlöndum og taka meðal annars öll sveitarfélög á Reykjanesi þátt.

Nánari upplýsingar veita Rannveig Magnúsdóttir, rannveig@landvernd.is s: 8650065, Margrét Hugadóttir, margret@landvernd.is s: 6973660, Tómas Knútsson, Tomas@blaiherinn.is s: 8976696.

The Campaign Keep Iceland Clean will be launched 25th of April

On the Icelandic Day of the Environment 25th of April, Landvernd, the Icelandic Environment Association and The Blue army launch their campaign Keep Iceland Clean. Landvernd encourages people to buy less, waste less and use less plastics. Every person or group can organize their own beach cleanup and Landvernd gives good advice on their website hreinsumisland.is.

At 10:00 pupils Grindavík Primary school and Krókur and Laut Kindergardens will help Landvernd to launch this important project. Grindavík will participate in the Nordic Beach clean up on 5th of May along with the other municipalities on Reykjanes peninsula.

Schedule

What: Launch of Keep Iceland Clean
Where: Grindavík primary school, Ásabraut 2, 240 Grindavík
When: 25th of april at 10am.

For more information, please contact Rannveig Magnúsdóttir, rannveig@landvernd.is tel: 8650065, Margrét Hugadóttir, margret@landvernd.is tel: 6973660, Tómas Knútsson, Tomas@blaiherinn.is tel: 8976696.