Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs

Kátir krakkar
Kátir krakkar

Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr. fyrir hvert barn.

Áður en þú sækir um styrkinn þarftu að kanna hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið. Það gerir þú með því að skrá þig inn á Ísland.is með rafrænum skilríkjum. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta hvort heimilið falli undir tekjuviðmiðið eða ekki.

Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á að sækja um styrk færð þú nánari upplýsingar um næstu skref. Ef þú færð svar um að þú eigir ekki rétt á styrk færð þú upplýsingar um hvert þú getur leitað ef þú ert með athugasemdir við niðurstöðuna eða fyrirspurnir.

  • Hægt er að sækja um styrk til og með 1.mars 2021.
  • Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020–2021.

Kanna rétt á styrk eða sækja um styrk

Fyrirspurnum um styrkina skal beint á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Meðferð persónuupplýsinga

Í þeim tilgangi að meta hvort þú fallir undir tekjuviðmiðið og eigir rétt á styrk, eða ekki, er unnið með eftirfarandi persónuupplýsingar: nöfn og kennitölur heimilismanna, lögheimili, fjölskyldunúmer auk upplýsinga um tekjur heimilismanna á tímabilinu mars–júlí 2020. Þegar skattayfirvöld hafa fengið rafrænt undirritað umboð frá þér um að sækja megi upplýsingar um tekjur er þeim upplýsingum miðlað til Ísland.is. Þitt sveitarfélag hefur einnig aðgang að framangreindum upplýsingum inni á Ísland.is.

Vinnsla persónuupplýsinga og varðveisla þeirra í tengslum við umsókn um íþrótta- og tómstundastyrk er á ábyrgð Ísland.is. Vinnsla persónuupplýsinga vegna reksturs Ísland.is er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Lindargötu 7, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá Stjórnarráði Íslands má finna í persónuverndarstefnu þess, svo sem um varðveislutíma upplýsinga og réttindi þín. Stjórnarráðið um meðferð persónuupplýsinga.

Vinsamlegast athugið að ofangreint á einungis við um Ísland.is og gilda aðrar reglur um meðferð persónuupplýsinga þegar kemur að sjálfu umsóknarferlinu hjá þínu sveitarfélagi.