Sumarvinna ungs skólafólks

Vinnuskólinn að störfum.
Vinnuskólinn að störfum.

Reykjanesbær mun í sumar bjóða ungu skólafólki á aldrinum 17 - 20 ára vinnu við ýmis umhverfisverkefni í bæjarfélaginu.

Um er að ræða tvö vinnutímabil, 4 vikur hvort. Umsækjandi velur annað hvort tímabilið.

A) tímabil frá 1. júní - 30.júní
B) tímabil frá 1. júlí - 30. júlí.


Vinnutími er frá 07.30 - 16.00 mánudaga - fimmtudaga og frá 07.30 - 12 á föstudögum
Aðeins er hægt að sækja um rafrænt á mittreykjanes.is.

Umsækjendur þurfa að framvísa staðfestingu frá skóla um að þeir séu í námi.

Umsóknarfrestur er til 14. maí n.k.