Syngjum um lífið með fólki eins og þér !

Blöðrum sleppt við Myllubakkaskóla á setningarathöfn Ljósanætur.
Blöðrum sleppt við Myllubakkaskóla á setningarathöfn Ljósanætur.

Sumrinu er að ljúka og við suðurnesjamenn kveðjum það með pompi og prakt með því að koma saman eins og ein stór fjölskylda og njóta lífsins fyrstu helgi september mánaðar á fjórtándu Ljósanóttinni, menningar- og fjölskylduhátíðinni okkar allra.  Ljósanótt markar upphaf haustsins og allrar þeirrar rútínu sem því fylgir.  Grunnskólabörnin eru í aðalhlutverki að vanda við setningu hátíðarinnar ásamt elsta árgangi leikskólanna og er það alltaf jafn hátíðleg stund þegar þau sleppa blöðrunum í öllum regnbogans litum upp í loftið og senda nágrönnum okkar nær og fjær boð um það að Ljósanótt sé hafin og allir eru velkomnir.  Blöðrurnar tákna líka hið litríka fjölmenningasamfélag sem við búum í og að hér eigi allir tilverurétt og að við gerum hlutina saman.   Okkar mikilsvirti bæjarlistamaður Rúnar Júlíusson orti og söng „það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig“ þetta eru orð að sönnu og Ljósanótt er sannarlega lýsandi dæmi um þessi fallegu orð.  Ekki væri hægt að halda svona metnaðarfulla hátíð nema með tilkomu allra þeirra fjölmörgu listamanna og starfsfólki sem þeim fylgja ásamt fyrirtækjunum, einstaklingunum og félögunum sem styðja við hátíðina með fjárframlögum, sjálfboðavinnu og/eða almennri vinnu og ekki má gleyma hinum almenna bæjarbúa sem mætir á viðburðina með gleðina að leiðarljósi sama hvernig viðrar.

Dagskráin er í mótun og fastir dagskrárliðir komnir með tímasetningar, en alltaf koma spennandi nýjungar sem vert er að fylgjast með inn á vefnum okkar www.ljosanott.is.  Sem dæmi má nefna er að nýtt hringtorg verður opnað, stórt útilistaverk afhjúpað og á föstudagskvöldinu prófum við að breyta til og höldum bryggjuball við smábátahöfnina í stað tónleika á stóra sviðinu.  Bæjarbúar voru beðnir um að senda inn tillögu að nafni á hátíðarsvæðið þar sem stóra sviðið er og af tæplega hundrað góðum tillögum varð fyrir valinu nafnið Bakkalág sem er skemmtilegur orðaleikur sem vísar í sjávarbakkann, lágina sem er landfylling og þá hefð sem áður var að breiða út og þurrka saltfisk á þessu svæði sem síðan var seldur erlendis og kallaðist þá gjarnan „bacalao“.   Þótt hátíðin hafi tekist mjög vel undanfarin ár, er alltaf gaman að breyta til og prófa eitthvað nýtt enda erum við rík af fjölbreyttum hópi hæfileikafólks sem lætur ekki sitt eftir liggja til að tryggja þann gæðastuðul og það góða orðspor sem af hátíðinni fer.  Þessu góða orðspori eigum við bæjarbúar að halda á lofti og bjóða gestum með stolti að koma og kynna sér málið af eigin raun enda er eitthvað í boði fyrir alla og langflestir viðburðirnir eru gjaldfrjálsir.  Árgangagangan er besta dæmið um það, kostar ekkert nema gleðina sem fylgir því að hitta jafnaldra sína og rifja upp góðar minningar ásamt því að áforma nýjar.

Ljósanótt telst til stærstu fjölskylduhátíða landsins og fer sífellt stækkandi.  Metnaðurinn til að gera vel verður síst minni fyrir vikið og er það einfaldlega aðdáunarvert hversu mikið gæðaframboð er af viðburðum sem prýða dagskránna.  Tónlistarhefðin hefur löngum loðað við okkur hér suður með sjó og nú kynnum við með stolti til sögunnar nýtt slagorð Ljósanætur „Við syngjum um lífið“ sem er tilvísun í texta keflvíkingsins Þorsteins Eggertssonar og þótti slagorð þetta einkennandi fyrir okkar samfélag og hátíðina sem slíka.  Við kjósum að lýsa upp myrkrið og höfum jákvæðni og hamingju í forgrunni með því að njóta lífsins meðan kostur er og hvetjum aðra til þess að gera slíkt hið sama og sjá ljósið með okkur þann 5.-8. september á Ljósanótt 2013.

Björk Þorsteinsdóttir
Formaður Menningarráðs Reykjanesbæjar