Sýningin „Þó líði ár og öld“ opnar í Rokksafninu á laugardag

Sýningin um Björgvin Halldórsson ber heitið Þó líði ár og öld.
Sýningin um Björgvin Halldórsson ber heitið Þó líði ár og öld.

Á sýningunni „Þó líði ár og öld“ um Björgvin Halldórsson, sem áætlað er að muni standa yfir í að minnsta kosti eitt og hálft ár, er farið um víðan völl og fjallað er ítarlega um hinar ýmsu hliðar Björgvins. Sýningin verður opnuð formlega laugardaginn 12. september kl. 15:00.

Eins og flestum er kunnugt hefur Björgvin verið einn ástsælasti og vinsælasti söngvari landsins um árabil og sungið með hljómsveitum eins og Bendix, Flowers, Ævintýri, Hljómum, Brimkló, Change, HLH flokknum, Ðe lónlí blú bojs og mörgum fleiri. Björgvin hefur líka sinnt ýmsum störfum tengdum tónlist og fjölmiðlum í gegnum tíðina og má til dæmis nefna að hann starfaði sem markaðsfulltrúi á Íslensku auglýsingastofunni um tíma, var útvarpsstjóri Stjörnunnar og Bylgjunnar, framleiðandi og sjónvarpsstjóri Bíórásarinnar sem og verið rödd Stöðvar 2 um árabil. Einnig hefur Björgvin verið útgefandi, upptökustjóri, sinnt stjórnunarstörfum hjá hinum ýmsu fagfélögum tónlistarmanna og verið markaðsstjóri á veitingahúsinu Broadway.

Fjallað er um margar hliðar Björgvins á sýningunni og þeim gerð skil með hjálp tækninnar. Á sýningunni segir Björgvin sögur af ferli sínum og aðrir segja sögur af honum. Björgvin er mikill safnari og á sýningunni má finna fjölmarga muni sem hann hefur haldið til haga frá ferli sínum og samstarfsmanna í gegnum tíðina. Þar á meðal er hluti gítarsafns hans á sýningunni, plaköt allt frá fyrstu tónleikum til dagsins í dag, gullplötur, textablöð, glymskratti, ógrynni ljósmynda og myndbanda og þannig mætti lengi telja. Áætlað er að sýningin Þó líði ár og öld muni standa yfir í að minnsta kosti eitt og hálft ár. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið yfir í tæplega ár og er óhætt að sýningin sé öll hin glæsilegasta!

Sýningarstjóri og hönnuður er Björn Georg Björnsson.

Þetta er önnur sérsýningin Rokksafns Íslands, sú fyrsta var „Einkasafn poppstjörnu“ um Pál Óskar Hjálmtýsson.

Myndir frá uppsetningu sýningarinnar Þó líði ár og öld