Sýningin TÓMT opnar í Listasafni Reykjanesbæjar

Frá sýningunni TÓMT
Frá sýningunni TÓMT

Sýningin TÓMT verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 22. október n.k.kl. 18.00 og eru allir velkomnir.

Þar er á ferðinni listamaðurinn Jón B.K.Ransu með ný málverk. Ransu hefur sýnt víða, bæði einkasýningar og samsýningar og einnig hefur hann lengi verið virkur í skrifum um myndlist ásamt því að kenna myndlist.
Sýningin Tómt er framhald tveggja sýninga með sama nafni þar sem Ransu vinnur áfram með hugmyndina „að ramma inn tómt" og vísar þar til þess hvernig ramminn hefur þá stöðu að vera hvorki hluti af myndinni né heldur er hann aðskilinn frá henni og því spurning um gildi hvors um sig. Í skemmtilegum texta eftir listamanninn í sýningarskránni veltir hann m.a. fyrir sér sambandsins á milli þagnarinnar og tónanna í tónlistinni, þar sem hvoru tveggja er jafn mikilvægt og hvorugt getur án hins verið. Kann samskonar samband að vera á milli forma og tóms?

Sýningin Tómt er í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum í Reykjanesbæ og stendur til 5. desember. Safnið er opið alla daga frá kl. 13.00-17.00 og ókeypis aðgangur.