„Tækifærin eru þarna, grípum þau" segir Magnús Scheving

Þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 17:00 býður Virkjun uppá skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur.

Magnús Scheving, höfundur Latabæjar, flytur létt og skemmtilegt erindi um hugsunarhátt frumkvöðla, mikilvægi nýsköpunar og tækifærin sem eru allt í kringum okkur. Áheyrendum gefst kostur á að spyrja Magnús um hvað eina sem þeim dettur í hug; allt frá Latabæ til Hvíta hússins í Washington en Magnús hóf m.a. nýlega samstarf við forsetafrú Bandaríkjanna; Michelle Obama við að hrinda af stað heilsuátaki á meðal barna í USA.