Takk fyrir frábæra Ljósanótt

Ljósanótt 2026 er að baki eftir einstaklega vel heppnaða hátíð þar sem Reykjanesbær iðaði af lífi, menningu og góðri stemningu. Fjöldi fólks lagði leið sína á hátíðina og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá sem teygði sig um bæinn allan.

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir mikla ástæðu til að vera stolt af hátíðinni og þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu sitt af mörkum til að gera Ljósanótt að þeirri hátíð sem hún er.

„Ljósanótt er okkar hátíð og við getum svo sannarlega verið stolt af henni. Reykjanesbær skartaði sínu fegursta og við tókum á móti miklum fjölda gesta með glæsibrag. Það er vart hægt að hugsa sér betri leið til að kveðja sumarið og ganga inn í haustið af krafti,“ segir Vilhjálmur.

Samfélagið tók virkan þátt
Eitt af því sem einkenndi Ljósanótt í ár var hversu víða líf og fjör skapaðist. Samhliða dagskrá hátíðarinnar fjölgaði viðburðum víðs vegar um bæinn, listasýningar og pop-up staðir spruttu upp, verslanir og veitingastaðir tóku virkan þátt og handverksfólk, listafólk, félagasamtök og fjölmargir aðrir lögðu sitt af mörkum.

„Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu öflugt samfélagið okkar var í að byggja ofan á þann grunn sem Reykjanesbær leggur með hátíðinni. Allt þetta gerði Ljósanótt enn stærri og líflegri og stemningin hélst langt fram á sunnudag,“ segir Vilhjálmur.

Að baki hátíð af þessari stærðargráðu liggur jafnframt mikil vinna. Fjöldi starfsmanna Reykjanesbæjar kemur að skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd Ljósanætur auk fjölmargra samstarfsaðila, verktaka, fyrirtækja og einstaklinga.

„Það er auðvelt að sjá glæsilega hátíð, fullar götur og góða stemningu þegar allt er komið af stað. Það sem sést síður er öll vinnan sem liggur að baki - vikur og mánuðir af undirbúningi og síðan langir dagar meðan á hátíðinni stendur. Öllum þeim sem komu að hátíðinni með einum eða öðrum hætti færi ég innilegar þakkir.“

Takk fyrir Ljósanótt 2026
Reykjanesbær þakkar öllum sem komu að Ljósanótt 2026 fyrir þeirra framlag - starfsfólki, samstarfsaðilum, styrktaraðilum, listafólki, félagasamtökum, fyrirtækjum, viðburðahöldurum og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóg.

Síðast en ekki síst eru íbúum og gestum færðar bestu þakkir fyrir þátttökuna og fyrir að skapa þá einstöku stemningu sem einkenndi bæinn alla hátíðardagana.

Takk fyrir frábæra Ljósanótt – og sjáumst að ári!

Vilhjálmur Árnason,
bæjarstjóri