Hvernig upplifðir þú BAUN?

Takk fyrir þátttökuna í BAUN, barna- og ungmennahátíð

Síðustu tvær vikur hafa án efa verið töluvert annasamar hjá foreldrum og ömmum og öfum við að fylgja börnum sínum um bæinn og aðstoða þau við að leysa alls kyns þrautir, taka þátt í viðburðum og smiðjum og safna stimplum í BAUNabréfið sitt sem var eins konar leiðarvísir um hátíðina en yfir 50 dagskrárliðir voru á dagskrá hennar. 

Þátttaka í hátíðinni í ár var geysilega góð og mörg hundruð börn tóku þátt á hverjum stað í hinum ýmsu viðburðum, smiðjum og þrautum sem boðið hefur var upp á.

Minnt er á að hægt er að skila þátttökuseðlinum úr BAUNabréfinu út þessa viku í Duus Safnahús, Rokksafn Íslands, Bókasafnið og Sundmiðstöðina og freista þess að vinna glæsilegt trampólín frá Húsasmiðjunni ásamt aukavinningum.

Markmið hátíðarinnar eru m.a. þau að auka lífsgæði og vellíðan barna og íbúa Reykjanesbæjar og jafnframt að skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu. Það er von okkar að það hafi tekist og að börn og fjölskyldur hafi átt frábærar stundir saman á BAUN.

Við viljum halda áfram að þróa BAUNina og óskum eftir ykkar aðstoð við það með því að svara örstuttri könnun um upplifun ykkar og barnanna ykkar af hátíðinni, könnunin verður opin til 21. maí.

TAKA ÞÁTT Í KÖNNUN!