Reykjanesbær vinnur að því að byggja upp nýtt og lifandi miðsvæði á Akademíureit austan við Reykjaneshöllina. Uppbyggingin er einstakt tækifæri til að bæta bæinn okkar og það væri verðmætt að fá þína rödd að borðinu.
Myndaður hefur verið starfshópur Reykjanesbæjar um þróun svokallaðs Akademíureits á horni Þjóðbrautar og Krossmóa. Verkefni starfshópsins er að afla gagna til þess að taka ákvörðun um forsendur þróunar svæðisins og bjóða svo svæðið út til teyma fjárfesta og hönnuða sem þróunarsvæðis til uppbyggingar miðbæjartengdar starfsemi.
Verkefnið er unnið í samstarfi við ALTA, ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig meðal annars í skipulagi og byggðaþróun og greiningu lands og búsetu.
Í greiningu frá ALTA kemur fram að Akademíureiturinn er staðsettur þar sem fjölfarnar leiðir mætast, hann er miðsvæðis í þéttbýli Reykjanesbæjar og er einnig staðsettur við mikið íþróttasvæði. Hann er einnig vel tengdur við Keflavíkurflugvöll. Í nálægð við svæðið er mikið mannlíf, samfélagsþjónusta og starfsemi, eins og skólar, leikskólar, íþróttir og tómstundir, sundmiðstöð, verslanir, skrifstofuhúsnæði, almenningssamgöngur og margt annað! Er þetta því stórt tækifæri til að tengja byggðina betur saman og Akademíureiturinn talinn vera vettvangur fyrir nýjan samkomustað.
„Hlutverk okkar hjá Alta er að aðstoða Reykjanesbæ við að greina ýmsar forsendur og möguleg hlutverk reitsins, til þess að þar geti orðið til lifandi og áhugaverður kjarni. Þið í Reykjanesbæ þekkið Reykjanesbæ best og því er stór hluti okkar vinnu að leita eftir ykkar hugmyndum og sjónarmiðum. “ segir Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi hjá ALTA.
Mikilvægur liður í mótun verkefnisins er samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila, sem þekkja svæðið best og koma til með að njóta afraksturs verkefnisins. Samráðið hefst með spurningakönnuninni hér fyrir neðan og vonandi sérð þú þér fært að leggja þitt af mörkum, það er fljótlegt og einfalt.
Svörin munu nýtast við mótun forsagnar að skipulagi, sem ALTA vinnur að. Forsögnin leggur grunn að þróun svæðisins og verður afhent hönnuðum og þróunaraðilum, sem koma til með að vinna skipulag og hanna uppbyggingu og útirými á reitnum.
Könnunin verður opin til 22. maí 2025
TAKTU ÞÁTT Í KÖNNUNINNI

