- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Búið er að endurreikna tekjutengdan afslátt fasteignaskatts ársins 2026 hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum miðað við tekjur 2025 í samræmi við tekjuviðmið Reykjanesbæjar.
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti á árinu 2026
Í upphafi þessa árs var afslátturinn reiknaður m.v. tekjur 2024 en venju samkvæmt er afsláttur leiðréttur núna í júní miðað við tekjur síðastliðins árs, 2025.
Í mörgum tilvikum helst afsláttur hinn sami en afsláttur getur líka tekið breytingum eða jafnvel fallið niður. Ef breytingar verða er hægt að sjá þær á breytingarseðlum inná Ísland.is. Allar breytingar á afslætti deilast síðan á þá fimm gjalddaga fasteignagjalda sem eftir eru, júlí-nóvember, hvort sem afsláttur hækkar eða lækkar.