Leiðsögn um sýningu Gillian Pokalo

Gillian Pokolo við verk sín
Gillian Pokolo við verk sín

Gillian Pokalo er bandarískur listamaður sem hrifist hefur af íslenskri náttúru. Hún verður með leiðsögn um sýningu sína í Stofunni í Duus Safnahúsum sunnudaginn 9. júlí kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Þetta er jafnframt síðasti sýningardagur sýningarinnar. Verkin, silkiþrykksmyndir af Reykjanesi, eru afrakstur tveggja ferða hennar til Íslands í apríl 2016 og mars 2017. 

Gillian segir sjálf um verkin sín: „Vinnuferlið hefst á ljósmyndum en myndefni þeirra gefur innsýn inn í hluti og staði sem hafa verið yfirgefnir. Mannvirki sem byggð eru til að standast tímans tönn, en eru síðar yfirgefin, segja mikið um mannlegt ástand okkar og kveikja spurningar um hver við erum og hver arfleifð okkar verður. Að lokum endurheimtir náttúran ávallt mannvirkin sem við byggjum, það er merki um tímabundið eðli veruleikans. Vinnuferli prentunar er svipað, blekið sem verður eftir er sönnunargagn um prentunina, líkt og sönnunargögnin um byggð manna eru mannvirki þeirra. Prentunin gerir mér kleift að prenta ákveðið yfirgefið mannvirki mörgum sinnum en þannig getur mannvirkið sagt sögu sína á marga vegu.“