Þarftu að losa þig við jólatré?

Starfsfólk Reykjanesbæjar býðst til að sækja jólatré íbúa til förgunar. Ljósmynd: Umhverfisstofnun.
Starfsfólk Reykjanesbæjar býðst til að sækja jólatré íbúa til förgunar. Ljósmynd: Umhverfisstofnun.

Reykjanesbær býður íbúum sem þess óska að sækja jólatré til förgunar. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu geta hringt í síma Þjónustumiðstöðvar 420-3200. Þjónustumiðstöðin er opin kl. 07:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 07:00 til 12:30 föstudaga.