Þátttaka eykst með hverri Ljósanótt

Mannfjöldi á Ljósanótt
Mannfjöldi á Ljósanótt

Sú skemmtilega þróun er að verða á menningar- og fjölskylduhátíðinni Ljósanótt að bæjarbúar verða sífellt virkari í því að skapa þá hátíð sem þeir vilja halda. Það gera þeir með því að standa sjálfir fyrir ýmiss konar viðburðum á hátíðinni. Við það eykst gildi hennar til muna. Sömu sögu er að segja af styrktaraðilum hátíðarinnar sem standa þétt við bakið á henni. Nýir aðilar hafa í bæst í hópinn í ár með myndarlegum hætti fullir meðvitundar um það að jákvæð ímynd bæjarins skipti máli fyrir fyrirtækin sem í bænum starfa. Einnig að jákvæð ímynd hafi áhrif á aðgang þeirra að góðu vinnuafli á þann hátt að hingað vilji flytja og starfa öflugt fólk. Þannig sé það sameiginlegt verkefni bæjarins og fyrirtækja sem þar starfa að styðja við jákvæð verkefni og jákvæða ímyndarsköpun á svæðinu.

Fimm daga hátíðarhöld

Þótt formleg setning hátíðarinnar sé á fimmtudag, þar sem öll grunnskólabörn bæjarins um 2000 talsins, auk elstu barna leikskólans, koma saman og syngja inn hátíðina, teygir hún sífellt út anga sína. Nú eru stórir viðburðir á miðvikudeginum einnig. Tónlistarsýningin „Með Soul í auga“ í Andrews leikhúsinu á Ásbrú ber þar hæst auk Ljósanæturhlaups Lífsstíls.

Opnun fjögurra nýrra sýninga í Listasafni Reykjanesbæjar á eftirmiðdegi fimmtudags markar upphaf sýningarhalds Ljósanætur . Það hefur verið eitt af aðalsmerkjum hátíðarinnar en á fjórða tug list- og handverkssýninga hafa verið skráðar til leiks. Þessi dagur er orðinn nokkuð stór, ekki síst hjá heimafólki, og má sjá alls kyns hópa svo sem saumaklúbba og vinnustaði gera sér glaðan dag á þessum degi. Sýningar eru þræddar og verslanir kannaðar en þess má geta að verslanir eru með góð tilboð í gangi alla helgina.

Á föstudegi ber hæst Bryggjuball og kjötsúpu fyrir alla á smábátahöfninni. Þar kemur mestmegnis fram heimafólk með Bæjarstjórnarbandið fremst í flokki þar sem menn spila og syngja sem einn maður án allra flokkadrátta og hefur þetta vakið mikla kátínu. Einn utanbæjarmaður er þó á gestalistanum en það er öðlingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson.  Þá er löngu orðið uppselt á Heimatónleika sem haldnir eru í gamla bænum í þriðja sinn en þeir eru einmitt dæmi um verkefni sem íbúar sjálfir standa fyrir og hefur slegið rækilega í gegn. 450 miðar seldust upp á einum degi en voru þó tvöfalt fleiri en árið á undan.

Laugardagur á Ljósanótt

Engum ætti að leiðast á laugardegi Ljósanætur sem er aðal dagur hátíðarinnar með standandi dagskrá frá morgni til kvölds. Aðalsmerki Ljósanætur er Árgangagangan sem er einstök á landsvísu. Árgangarnir hittast á Hafnargötu og ganga í skrúðgöngu niður á hátíðarsvæði og safnast þar saman fyrir framan aðalsvið hátíðarinnar. Síðan taka við hinir ýmsu viðburðir, tónleikar, sýningar, barnadagskrá o.fl. Íbúar fara síðan flestir hverjir heim til að borða og eru súpuboð haldin í öðru hverju húsi fyrir vini og ættingja.

Stórtónleikar Ljósanætur eru svo hápunktur hátíðarhaldanna og þar koma fram Emmsjé Gauti, Jana María og hljómsveit, KK og Maggi Eiríks, Hljómsveitin Valdimar og Jón Jónsson og hljómsveit og er herlegheitunum útvarpað á Rás 2. Auðvitað er kvöldið toppað með stórglæsilegri flugeldasýningu og að henni lokinni eru ljósin á Berginu kveikt, en af þeim dregur hátíðin einmitt nafn sitt. Ljósin loga svo fram á vor og varpa hlýlegri birtu yfir Stakksfjörðinn á sama tíma og skammdegið bankar upp á.

Á sunnudegi eru allar sýningar enn opnar ásamt leiktækjum og sölutjöldum og þá getur fólk komist yfir það sem það átti eftir. Þá eru einnig viðburðir í Höfnum m.a. tónleikar með KK og Elízu Newman í Kirkjuvogskirkju og kaffisala og sala sérstaks lífsstílsvarnings í samkomuhúsinu.

Viðburðir á vef Ljósanætur

Upplýsingar um alla dagskrá og einstaka viðburði er að finna á ljosanott.is. Þar er nú að finna ríflega 100 viðburði, um 30 list- og handverkssýningar og á þriðja tug tónlistarviðburða og sífellt bætist við fjölbreytta flóruna.

Gleðilega Ljósanæturhátíð!