Þátttökuverðlaun veitt fyrir BAUN

Hér má sjá Óliver Dalberg, Unnar Snæ, Grétu Rós, Hilmar Daða, Aþenu Móu og Máneyju Höllu sem voru d…
Hér má sjá Óliver Dalberg, Unnar Snæ, Grétu Rós, Hilmar Daða, Aþenu Móu og Máneyju Höllu sem voru dregin úr BAUNAbréfapottinum ásamt Guðlaugu Maríu Lewis menningarfulltrúa og Gísla Hlyni Jóhannssyni verslunarstjóra Húsasmiðjunnar sem studdi við verkefnið.

Það ríkti spenna og gleði þegar dregið var úr BAUNabréfapottinum eftir frábæra þátttöku á BAUN, barna- og ungmennahátíð Reykjanesbæjar sem fór fram 30. apríl-10. maí.

Alls skiluðu á fjórða hundrað börn inn BAUNabréfum eftir að hafa tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum víðs vegar um bæinn og voru sex heppnir þátttakendur dregnir út í beinni útsendingu á Facebook-síðu BAUNar. Tvö heppin börn hlutu stór trampólín frá Húsasmiðjunni og fjögur fengu gjafabréf fyrir fjölskylduna í Ísbúð Huppu. Verðlaunaafhendingin fór fram í Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ sem stutt hefur dyggilega við verkefnið og færum við þeim sérstakar þakkir.

Dagskráin í ár var einstaklega fjölbreytt og greinilegt að eitthvað var fyrir alla. Börnin sóttu meðal annars listviðburði, heimsóttu bókasöfn, fóru í sund, tóku þátt í íþróttaviðburðum og fjölskylduviðburðum. Fjölmörg skemmtileg svör bárust um það sem stóð upp úr hjá þátttakendum og vakti nýr viðburður, "Hvað má fara í klósettið?", sérstaklega mikla athygli þar sem börnin fengu að heimsækja Fráveitustöðina og fræðast á skemmtilegan hátt.

Könnun sem lögð var fyrir sýndi mikla ánægju meðal þátttakenda. Margar góðar og gagnlegar ábendingar bárust um það sem vel tókst og hvað mætti þróa áfram fyrir næstu BAUN.

Það var einnig afar ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í hátíðinni og lögðu sitt af mörkum til að skapa skemmtilega stemningu í bænum. Þar má meðal annars nefna Hotel Marriott sem veitti styrk til plöntukaupa og samfélagslögregluna sem tók virkan þátt í hátíðinni og nýtti hvert tækifæri til jákvæðra samskipta við íbúa.

Hlökkum til að sjá ykkur á næstu BAUN!