- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
- Fánahyllar
Mikill mannfjöldi lagði leið sína í skrúðgarðinn í Keflavík á þjóðhátíðardaginn 17. júní og tók þátt í hátíðar- og skemmtidagskrá sem fram fór í skrúðgarðinum og ungmennagarðinum við 88-húsið.
Dagskráin hófst með hátíðarguðþjónustu í Keflavíkurkirkju þar sem sr. Erla Guðmundsdóttir þjónaði fyrir altari og kór Keflavíkurkirkju söng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Að guðþjónustu lokinni var gengið fylktu liði með hátíðarfánann í skrúðgarðinn undir forystu skáta úr Heiðabúum og Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Jón Ólafur Jónsson, íþróttakempa og félagsmálafrömuður, dró íslenska fánann að húni en fáninn er sá stærsti á Íslandi, rétt um 25 fermetrar að stærð. Hann er þriðja kynslóð af fánanum sem flaggað var á Þingvöllum 17. Júní 1944. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri flutti fánahylli þakkarorð en þann heiður hlýtur íbúi sem lagt hefur gott af mörkum til samfélagsins með störfum sínum. Þakkarorðin má lesa hér.
Karlakór Keflavíkur flutti þjóðsönginn og Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar flutti setningarræðu hátíðarinnar. Hana má lesa hér.
Að setningarræðu lokinni flutti fjallkona ársins, Ástríður Auðbjörg Halldórsdóttir nýstúdent, ljóðið Ljóslínur eftir Þórdísi Helgadóttur. Ljóðið má lesa hér.
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, var ræðumaður dagsins og má lesa ræðu hennar hér.
Í hátíðardagskránni fór einnig fram afhending heiðursnafnbótarinnar Listamaður Reykjanesbæjar 2026–2030. Að þessu sinni hlutu tónlistarmennirnir Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason nafnbótina sameiginlega.
Magnús og Jóhann hafa í áratugi verið meðal þekktustu lagahöfunda og flytjenda landsins og átt stóran þátt í að móta íslenskt tónlistarlíf. Með verkum sínum hafa þeir jafnframt verið öflugir fulltrúar Reykjanesbæjar sem tónlistarbæjar.
Með nafnbótinni fylgdu verðlaunafé, viðurkenningarskjal og listmunurinn Lífangar eftir leirlistakonuna Arnbjörgu Drífu Káradóttur. Þakkarávarp forseta bæjarstjórnar má lesa hér.
Að lokinni formlegri dagskrá tók við fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Fram komu fjölbreyttir hópar og einstaklingar sem buðu upp á söng, dans, tónlist og aðra afþreyingu. Börnin nutu sín vel á leik- og skemmtistöðvum og víða mátti sjá fjölskyldur og vini njóta samverunnar í góða veðrinu.
Jafnframt fór fram dagskrá í ungmennagarðinum við 88-húsið þar sem ungt fólk gat tekið þátt í skemmtilegri afþreyingu og viðburðum sem sérstaklega voru ætlaðir þeim aldurshópi.
Þjóðhátíðardagurinn í Reykjanesbæ var því einstaklega líflegur og vel sóttur og enn á ný sýndi samfélagið styrk sinn með því að koma saman og fagna sjálfstæði Íslands.
Reykjanesbær færir öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd dagsins innilegar þakkir fyrir framlag sitt og óskar íbúum og gestum til hamingju með vel heppnaðan þjóðhátíðardag.




