Þjónusta kann að skerðast vegna útfarar Ásbjörns Jónssonar

Útför Ásbjörns Jónssonar bæjarlögmanns verður gerð frá Keflavíkurkirkju kl. 13:00 þann 13. desember
Útför Ásbjörns Jónssonar bæjarlögmanns verður gerð frá Keflavíkurkirkju kl. 13:00 þann 13. desember

Þjónusta í Ráðhúsi kann að skerðast föstudaginn 13. desember frá kl. 12:00 vegna útfarar Ásbjörns Jónssonar bæjarlögmanns. Útförin verður gerð frá Keflavíkurkirkju kl. 13:00 föstudaginn 13. desember. 

Ásbjörn starfaði hjá Reykjanesbæ frá 2015 allt til dauðadags, fyrst sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs en síðar sem bæjarlögmaður. 

Blessuð sé minning Ásbjörns.