Þrettándagleði í Reykjanesbæ

Þrettándagleði verður haldin í Reykjanesbæ föstudaginn 6. janúar 2023 með hefðbundnum hætti.
Hátíðin hefst kl. 18:00 með blysför frá Myllubakkaskóla þar sem gengið verður í fylgd álfakóngs, drottningar og hirðar þeirra að hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi en einnig hvetjum við fólk til að mæta með luktir í blysförina til að lýsa upp gönguna.

Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.
Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó til að ylja sér.
Í lok dagskrár verða jólin kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim einum er lagið.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar taka þátt í dagskránni.

Dagskrá


- english -

Say goodbye to Christmas in Reykjanesbær on Friday, January 6, 2023.

The festival starts at 18:00 with a torchlight walk from Myllubakkaskóli, where the fairy king, queen and their shepherd will be accompanied to the festival area at Hafnargata 12. Parents are encouraged to let the children take an active part in the fun by dressing up in various disguises, even demon disguises but we also encourage people to bring lanterns to the torchlight walk.

At the end of the walk Grýla, mother of the Santa Clauses, will welcome everyone, elves will raise their voices and sing, and all kinds of creatures will be roaming the area.
Bonfire will be in place at Ægisgata, opposite to the stage, and guests will be offered hot chocolate.
At the end of the program there will be fireworks hosted by Björgunarsveitin Suðurnes.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes and Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar will participate in the program.