Þrettándagleði og álfabrenna

Púkar munu láta sjá sig í þrettándagleðinni.
Púkar munu láta sjá sig í þrettándagleðinni.

Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin 6. janúar við Ægisgötu.

Stutt dagskrá hefst kl. 18:00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.

  • Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar
  • Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes og Léttsveit, Djasshljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.
  • Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar.
  • Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Athugið að bílastæði eru við Ægisgötu og Tjarnargötu 12