Tómas Viktor Young ráðinn í Hljómahöll

Tómas Viktor Young.
Tómas Viktor Young.

Tomas Viktor Young hefur verið ráðinn  framkvæmdarstjóri Hljómahallar, nýs tónlistar- og menningarhúss í Reykjanesbæ  úr hópi 27 umsækjenda.  Fyrirtækið Capacent vann forvinnuna við umsóknarferlið í samstarfi við stjórn Hljómahallar og voru tíu manns teknir í viðtöl. Áhersla var lögð á reynslu af rekstri og markaðsmálum auk háskólamenntunar sem nýtast myndi í starfinu.

Tómas er fæddur og uppalinn í Keflavík og útskrifaðist sem stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2002.  Hann lauk BSc í ferðamálafræðum 2008 og meistaraprófi í markaðsfræðum og alþjóða viðskiptum við viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 2010. Hann hóf nám í tónlistarskóla Reykjanesbæjar 9 ára gamall og  varð fljótt virkur í tónlistarlífi bæjarfélagsins .  Hann og nokkrir félagar stofnuðu m.a. hljómsveitina Rými  sem gaf út geisladisk árið 2002 og einnig hélt hann utan um tónleika unga fólksins á Ljósanótt í nokkur ár.  Tómas hefur unnið hjá Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar ÚTON s.l. fjögur ár og séð þar um fræðslustarf, fjármál, kynningarmál og ýmsa ráðgjöf. Hann skrifaði m.a. skýrslu um hagræn áhrif skapandi greina sem kom út árið 2011 og hefur vakið mikla athygli. Tómas hefur verið tengiliður við Hróarskelduhátíðina s.l. 14 ár og jafnframt unnið lengi í kringum Airwaves.   Hann stóð fyrir alþjóðlegu tónlistarhátíðinni ATP sem haldin var á Ásbrú í Reykjanesbæ á s.l. sumri  þar sem fjöldi innlendra og erlendra hljómsveita kom fram og skemmti á þriðja þúsund gesta. Tómas mun hefja störf í desember  en framkvæmdir við Hljómahöll eru nú á lokastigi og gert ráð fyrir að starfsemi þar geti hafist að einhverju leyti í janúar þegar Tónlistarskóli Reykjanesbæjar flytur sína stafsemi þangað.  Í Hljómahöll er einnig samkomuhúsið Stapi og stórt sýningarrými þar sem sýning á vegum Poppminjasafns Íslands er í undirbúningi og verður opnuð á nýju ári.