Tómstundamálþing TRB haldið í Virkjun

Frá starfi Tómstundabandalags Reykjanesbæjar
Frá starfi Tómstundabandalags Reykjanesbæjar

Tómstundamálþing Tómstundabandalags Reykjanesbæjar verður haldið í Virkjun á Ásbrú fimmtudaginn 25. mars 2010 kl. 19:30.

Fundarstjóri: Baldur Guðmundsson, markaðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík.

Andri Örn Víðisson formaður TRB: Staða tómstundamála í Reykjanesbæ, framtíð TRB og hugmyndir um breyttar reglur um úthlutun úr Tómstundasjóði. Hafa samningar Íþrótta- og tómstundasviðs bæjarins við tómstundafélög innan TRB skilað tilætluðum árangri ?

Gunnar Ellert Geirsson verkefnastjóri hjá Háskólavöllum: Kynning á fjölbreyttum möguleikum á tómstundastarfi á Ásbrú. Hvað er Tómstundatorg ?
Skipt verður upp í vinnustofur og fundagestum gefinn kostur á ræða saman og koma með tillögur og hugmyndir um hvernig bæta megi og efla tómstundastarf enn meira í Reykjanesbæ.

Kaffihlé. Kynntar verða niðurstöður úr samræðuhópum. Fartölvur verða á staðnum.

Mætum - stöndum saman og höfum gaman.
Allir velkomnir. Áhugafólk um tómstundir, menningu og æskulýðsfélög sérstaklega hvött til að mæta.

 Mynd: frá handverks- og frístundahátíð í Reykjanesbæ