Túngata 14 er Ljósahús Reykjanesbæjar

Ljósahús Reykjanesbæjar 2014

Reykjanesbær hefur staðið fyrir samkeppni um Ljósahús / Jólahús bæjarins frá árinu 2001 og er þetta því í fjórtánda sinn sem veittar eru viðurkenningar fyrir bestu ljósaskreytingarnar í bænum. Reykjanesbær hefur lengi verið þekktur fyrir mikla ljósadýrð og margir gera sér sérstaka ferð á aðventunni til bæjarins til að skoða ljósadýrðina. Viðurkenningar í samkeppninni um Ljósahús Reykjanesbæjar 2014 voru afhentar mánudaginn 15. desember í Duushúsum, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar.

Í ár var hafður sami háttur á valinu eins og í fyrra þ.e. að sérstök „jólanefnd“ tilnefndi tíu hús sem bæjarbúar sjálfir fengu svo að velja úr í rafrænni kosningu á vef Víkurfrétta. Tæplega 1.000 manns tóku þátt í valinu og er það miklu fleira fólk en sendi venjulega inn tilnefningar áður en þessi leið var farin. Þessi aðferð virðist því ná betur til íbúanna og ákveðið að halda þessu verklagi í framtíðinni.  Í valnefndinni sem valdi húsin á topp 10 listann sátu formaður menningarráðs Eva Björk Sveinsdóttir,  ásamt fulltrúa Víkurfrétta Páli Ketilssyni ritstjóra og fulltrúa HS Orku/Veitu Þórhildi Evu Jónsdóttur en það voru auðvitað íbúarnir sjálfir sem kusu sér Ljósahús.

Úrslitin urðu eftirfarandi

1. sæti Túngata 14    
2. sæti Týsvellir 1
3. sæti Freyjuvellir 7 

Aðrir á Topp 10 listanum voru

Borgarvegur 20
Heiðarból 19
Heiðarbrún 4
Melavegur 9
Miðgarður 2
Steinás 18
Þverholt 18

Rafmögnuð verðlaun frá HS Orku/Veitum

Verðlaunahafar fengu viðurkenningarskjal frá Reykjanesbæ og frá Hs-Orku/Veitum  fengust ávísanir upp í orkureikninginn í desember að upphæð kr. 30.000 fyrir fyrsta sætið, 20.000 fyrir annað sætið og 15.000 fyrir þriðja sætið. Enn er hægt að sjá hvað hús voru tilnefnd og myndir af þeim öllum á vef Víkurfrétta vf.is.

Jólaglugginn 2014

Við sama tækifæri voru veittar þrjár viðurkenningar fyrir fallegustu jólagluggana í verslunum og fyrirtækjum bæjarins og eftirfarandi fyrirtæki hlutu viðurkenningar fyrir glæsilegar skreytingar.

1.      Optical Studeo
2.      Skóbúð Keflavíkur
3.      Gallerý Keflavíkur