Tvö skemmtiferðaskip til Reykjanesbæjar

Tvö skemmtiferðaskip leggja að hjá Reykjaneshöfn í lok sumars sem býður upp á spennandi tækifæri fyrir bæði bæjarbúa og fyrirtæki í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum.

Fyrst kemur skipið Azamara Quest þann 31. ágúst. Þetta glæsilega skip er 181 metra langt, um 30.000 brúttótonn að stærð og með um 700 farþega auk 400 manna áhafnar. Áætlað er að skipið leggi í höfn kl. 08:00 um morguninn og að fyrstu gestir komi í land upp úr kl. 09:00. Skipið heldur svo af stað aftur kl. 17:00.

11. september kemur svo Plancius í höfn kl. 06:00. Skipið, sem er 90 metrar að lengd og um 3.400 brúttótonn, hefur með sér um 90 farþega og 50 í áhöfn. Skipið dvelur til hádegis, með brottför kl. 12:00.

Farþegar skipana er fjölbreyttur hópur frá ýmsum löndum og á mismunandi aldri, margir hverjir spenntir að skoða bæinn og leita að upplifun, verslun og menningu.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustuaðila í Reykjanesbæ til að bjóða upp á þjónustu fyrir erlenda gesti. Ef þú ert með þjónustu, vörur eða afþreyingu sem gæti höfðað til farþega og áhafnar, hvetjum við þig til að senda upplýsingar til Halldórs Hermannssonar hafnarstjóra, halldor.k.hermannsson@reykjanesbaer.is eða Þuríðar hjá Markaðsstofu Reykjaness, thura@visitreykjanes.is. Þannig verður hægt að koma upplýsingunum á framfæri við skipin og farþegana.

Reykjaneshöfn hefur gert samstarfssamning við sænska fyrirtækið Nordic Port Group AB um markaðssetningu svæðisins gagnvart skemmtiferðaskipum og var samningur þess efnis undirritaður á dögunum. Með heimsóknum sem þessum eykst sýnileiki svæðisins sem áfangastaðar fyrir smærri skemmtiferðaskip. Reykjanesbær hlakkar til þeirra spennandi tækifæra sem þetta kann að hafa í för með sér.

Nánari upplýsingar um komur skemmtiferðaskipa má finna á vef Reykjaneshafna.