Úlfur við girðinguna

Dýragarðurinn I. Verk eftir Úlf Karlsson á sýningunni Við girðinguna.
Dýragarðurinn I. Verk eftir Úlf Karlsson á sýningunni Við girðinguna.

Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Við girðinguna laugardaginn 11. nóvember  kl. 14.00.  Þar er á ferðinni einkasýning Úlfs Karlssonar sem er fæddur árið 1988 og er með eftirtektarverðustu listmálurum sinnar kynslóðar. Verk hans eru litríkar og átakamiklar hugleiðingar um mannlífið í abstrakt-expressjónískum anda. Úlfur hefur sýnt verk sín víða, bæði á Íslandi og erlendis og m.a. í Hilger, hinu þekkta gallerí í Austurríki.  

Heiti sýningarinnar Við girðinguna vísar til eiginlegrar staðsetningar hennar, nálægt gömlu flugvallargirðingunni þar sem fyrrum mættust íslensk og bandarísk menning: Íslendingasögur og teiknimyndasögur, rímnastemmur og rokktónlist, sviðakjammar og Hersheys súkkulaði. En sýningin er líka um girðingar í óeiginlegri merkingu, mörkin milli hins smáa og hins stóra, eyjaskeggja og meginlandsbúa, hins heimatilbúna og aðfengna, hins þekkta og óþekkta. Og sýning Úlfs staðfestir með sínum hætti, og af sérstökum ástríðukrafti að girðingin er ekki lengur held. Fiðrildi austur í Asíu blakar vængjum og kemur af stað hvirfilbyl hinum megin á hnettinum. Ofbeldi og óáran utan landsteina eru á augabragði orðin hluti af heimsmynd okkar, þökk sé snjallsímanum.

Verk Úlfs eru litríkur vettvangur óútkljáðra átaka, skyndilegra hugljómana og ókláraðra frásagna. Mörkin milli veruleika og óraunveruleika eru yfirleitt óljós og á endanum skilur listamaðurinn eftir heilmikið fyrir okkur að ígrunda, löngu eftir að myndir hans eru horfnar okkur sjónum. Sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson og listamaðurinn sjálfur verða með leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 12.nóvember kl. 16.00.

Sýningin stendur til 14. janúar n.k. og safnið er opið alla daga frá kl.12.00-17.00.