Umhverfismiðstöð kemur jólatrjám til förgunar

Starfsfólk Umhverfismiðstöðvar bíðst til að sækja lifandi jólatré við heimili fólks í Reykjanesbæ o…
Starfsfólk Umhverfismiðstöðvar bíðst til að sækja lifandi jólatré við heimili fólks í Reykjanesbæ og koma til förgunar. Panta þarf þjónustuna.

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar býður upp á hirðingu lifandi jólatrjáa frá íbúum og kemur þeim til förgunar. Hringja þarf í síma 420 3200 og óska eftir þjónustunni, sem verður á boðstólnum dagana 6. - 10. janúar. Íbúar þurfa að koma trénu fyrir utanhúss á sýnilegum stað vilji þeir nýta þjónustu Umhverfismiðstöðvar. Vinsamlegast takið tillit til slæmrar vindaspár þessa daga og festið tréð ef hætta er á að það fjúku burt.

Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar er opin kl. 07:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 07:00 - 12:30 föstudaga.