Umhverfisviðurkenningar afhentar við hátíðlega heimsókn

Umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar 2026 voru afhentar miðvikudaginn 2. september. Afhendingin var með breyttu og skemmtilegu sniði í ár þar sem verðlaunahafar voru heimsóttir og viðurkenningarnar afhentar á hverjum stað fyrir sig.

Ferðin hófst í Vatnsholti og þaðan var haldið víða um sveitarfélagið. Þetta nýja fyrirkomulag gaf gestum tækifæri til að sjá með eigin augum þá miklu vinnu, alúð og umhyggju sem liggur að baki hverri viðurkenningu. Afhendingin gekk einstaklega vel og var tekið hlýlega á móti hópnum á öllum stöðum.

  • Skógræktarfélag Suðurnesja hlaut samfélagsviðurkenningu í tilefni af 20 ára uppbyggingu og starfi félagsins í Vatnsholti.
  • Róbert Fisher og Bryndís Lúðvíksdóttir á Vallargötu 23, Litla Bæ, hlutu viðurkenningu fyrir mjög vel viðhaldið gamalt hús og snyrtilegan garð.
  • Íbúar við Hringbraut 79 hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegan og vel viðhaldinn einkagarð samkvæmt tilnefningu frá íbúum. Anna Marie Kjærnested tók við viðurkenningunni fyrir hönd íbúa.
  • Vilborg Sævarsdóttir og Garðar Einarsson á Reykjanesvegi 44 hlutu viðurkenningu fyrir fallegan og vel viðhaldinn einkagarð með fjölbreyttu plöntu- og gróðurúrvali.
  • Sveinn Enok Jóhannsson hjá Fornverkum í Höfnum hlaut viðurkenningu fyrir að miðla þekkingu á fornu verklagi með námskeiðahaldi og fyrir viðhald fornra garða í Höfnum.

Umhverfisviðurkenningarnar eru veittar þeim sem með framtaki sínu, natni og metnaði leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og auðga samfélagið. Reykjanesbær óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar þeim fyrir þeirra mikilvæga framlag til samfélagsins.