- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Undirbúningur BAUNAR, barna- og ungmennahátíðar Reykjanesbæjar, er nú hafinn. Hátíðin fer fram dagana 30. apríl til 10. maí 2026 og verður líkt og áður helguð börnum, ungmennum og fjölskyldum í Reykjanesbæ.
BAUN hefur það að markmiði að skapa vettvang fyrir gleði, sköpun og virka þátttöku í samfélaginu. Hátíðin byggir á samstarfi við fjölbreytta aðila og í undirbúningi hennar er lögð áhersla á að virkja ólíkar raddir, hugmyndir og krafta úr samfélaginu.
Í tengslum við undirbúning hátíðarinnar er nú kallað eftir þátttöku og samstarfi frá einstaklingum, félögum, listafólki, stofnunum, fyrirtækjum og öðrum sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til BAUNAR. Á næstu vikum verður meðal annars:
Allir þeir sem hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að skapa frábæra hátíð eru hvattir til að senda upplýsingar á menningarfulltrui@reykjanesbaer.is fyrir 1. mars n.k.