Uppfærsla og aukin rafræn stjórnsýsla

Kjartan Már.
Kjartan Már.

Eins og margir vita er upplýsingavefur Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is orðinn frekar lúinn. Hér er að finna mikið magn upplýsinga frá ýmsum tímum, sumar úreltar á meðan nýrri vantar. Þetta er auðvitað alls ekki nógu gott og hefur verið ákveðið að fara í uppfærslu og lagfæringar á vefnum í haust. Við biðjum þó íbúa og notendur að sýna okkur biðlund enn um sinn og fyrirgefa okkur trassaskapinn.

Ný heiti á sviðum og störfum

Í kjölfar skipulagsbreytinga sem tóku gildi þann 1. júní s.l. hafa orðið breytingar á ýmsum störfum og heitum einstakra sviða. Í gamla skipuritinu voru sviðin sjö en í því nýja fimm. Í kjölfarið þarf að fara í gegnum samþykktir, verklagsreglur, bréfsefni, merkingar, nafnspjöld o.fl. og færa til betri vegar. Sú vinna er hafin. Þetta verður þó gert þannig að eldra efni verður nýtt eftir því sem hægt er en nýjar merkingar teknar upp um leið og færi gefst.

Rafræn stjórnsýsla aukin

Reykjanesbær hefur um langt skeið lagt áherslu á rafræna stjórnsýslu þ.e. að gera íbúum kleift að afgreiða sig sjálfir og fá upplýsingar á sem sjálfvirkastan hátt í gegnum netið. Í kjölfar uppfærslu heimasíðunnar verður enn meiri áhersla lögð á þennan þátt. Í dag fer gríðarlegt magn af pappír í gegnum allt kerfið. Sömu erindin og tölvupóstarnir eru prentuð út aftur og aftur, stimpluð, skráð og skjöluð með tilheyrandi fjölda handtaka sem taka sinn tíma. Ætlunin er að reyna að lágmarka og einfalda öll þessi ferli eins og hægt er og auka sjálfvirkni með enn betri rafrænni stjórnsýslu. Um leið þarf að þjálfa og kenna starfsfólki á breytt umhverfi og það tekur líka tíma. Þessi áform verða betur kynnt síðar.

Dregið úr útgáfu prentaðs efnis

Með aukinni rafrænni stjórnsýslu verður hægt að draga úr útgáfu prentaðs efnis. Bæklingar, form, blöð og bækur munu því í nánustu framtíð fyrst og fremst liggja á netinu og þeir sem vilja eða þurfa geta þá prentað út hver fyrir sig. Þessu fylgir ekki aðeins mikið hagræði heldur gefst einnig tækifæri til að uppfæra, bæta og laga allt efni miklu hraðar og hafa til reiðu á fleiri tungumálum.

Spennandi tímar framundan

Þessar breytingar og ýmsar fleiri eru til merkis um spennandi tíma framundan fyrir íbúa, starfsmenn, gesti og aðra þá sem vilja kynna sér eða nýta þjónustu sveitarfélagsins. Áhersla verður lögð á að nýta nýjustu tækni til bættrar þjónustu, aukinnar skilvirkni og hagræðingar. Slíkar breytingar verða ekki gerðar á einni nóttu en vonandi fara fyrstu merki að sjást á haustmánuðum.

Kær kveðja

Kjartan Már Kjartansson 
bæjarstjóri